Jæja þá er smá pása í tilverunni. Þarf reyndar að fara að
skúra eina ferðina enn, karlmenn ættu að sjá meira um
þrif, ef þeir gerðu og hefðu gert það í gegn um tíðina,
væri örugglega búið að finna upp eitthvað fullkomið tæki sem kæmi í
veg fyrir að drulla festist út um allt og út um öll
gólf!!!!!!
Annars er skítarigning hérna í Reykjavíkinni haustið komið og ég
nálgast fertugsaldurinn óðfluga, þarf að fara að kaupa mér ný
blúndunærföt, svo mér finnist ég vera ung flott og
sexy.!!!
Nú er verið að mála yfrir monsterið á mál og menningu, sem
ég hef haft fyrir ásjónu minni alla daga í vinnunni, þetta
kallar á veislu!!!!!!!(ég á við kallinn með brjóstarhaldarann sem
er á bakhlið hússins, fyrir þá sem ekki vita.)
Var annars næstum því búin að fá bíl aftanaá mig þegar ég hætti
snögglega við að keyra yfir á rauðu ljósi. Gellan spilaði sig
líka kúl en án efa vorum við báðar með hjartað í pilsunum.
Klippti Braga í gær í baði. Rauk til klukkan 21:00 með
drenginn alveg, "ekki kliffa, ekki
kliffa.........."
en fyrsta kafla er lokið. Snyrtum
þetta síðar. Hann er náttúrulega alltaf jafn
sætur.
Eiríkur Steinn sofnaði þvílíkt sæll inní eldrauðu Mansteftir
júnætæt, var meira að segja sofnaður þegar ég kom frá því að
leita af honum Klóa með Braga. Hvað var nú aftur það sem sagt
var um þennan rauða lit (á hann ekki að vera svo örfanid???)"
spyr mig að því hver meiningin með þessum rauða lit hafi verðið hjá
henni mömmsu???

jæja nóg af bulli